Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, kom til okkar. Við ræddum um Seðlabankann en ársfundur hans var í síðustu viku. Það fer ekki hátt að þrettán milljarða tap varð á rekstri bankans á síðasta ári - og átján milljarða tap 2022. Á meðan græða viðskiptabankarnir. Við fórum yfir þetta og fleira með Þórði.
Arthur Björgvin Bollason talaði um þýsk stjórnmál; um áhrif innrásar Rússa í Úkraínu á pólitíkina í Þýskalandi og þá óeiningu sem ríkir um afstöðu og aðgerðir vegna hennar. Þá ræddum um Gerhard Schröder, sem var kanslari í kringum aldamótin síðustu og er - eða var alla vega – vinur Pútíns.
Gleðin verður allsráðandi á Seltjarnarnesi í dag – sem aldrei fyrr - þegar hálfrar aldar kaupstaðarafmæli verður fagnað. Já, 50 ár eru í dag síðan Seltjarnarnes breyttist úr hrepp í bæ. Við fjöllum um menningu og mannlíf á Nesinu, til okkar komu Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur; Seltirningur í húð og hár og Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur sem býr á Nesinu og þekkir vel sögu sveitarfélagsins.
Tónlist:
Ævar Örn Sigurðsson, Ólafur Hólm, Arnór Sigurðarson Tónlistarm., Harmonikkubræður, Bragi Þór Ólafsson, Andri Snær Þorsteinsson, Bragi Fannar Þorsteinsson - Hjálpaðu mér upp.
Helgi Hrafn Jónsson, Dickow, Tina - Jeg har så travlt - Featuring Helgi Jonsson.
Léttsveit Seltjarnarness - Groovin hard.