Einar Már Guðmundsson rithöfundur hefur tekið höndum saman með danska saxafónleikaranum Dorthe Højland við svokallaðan ljóðadjass. Þau kynna nú verk sín fyrir Íslendingum þar sem mætast tónlist og ljóðlist þessara tveggja listamanna sem hrifist hafa af tjáningu hvors annars, í tónleikaferð sem fer um landið og hefst nú um helgina. Einar Már var gestur Morgunvaktarinnar og sagði frá ljóðunum og djassinum.
Fimm íslenskir keppendur eru mættir til leiks til Parísar þar sem Ólympíumót fatlaðra hófst í vikunni. Jón Björn Ólafsson hjá Íþróttasambandi fatlaðra er fararstjóri íslenska hópsins, hann var á línunni frá París og ræddi mótið og stöðu íþróttaiðkunar fatlaðra á Íslandi og erlendis.
Magnús Lyngdal Magnússon leiddi að lokum hlustendur um heim Franz Schuberts í klassíska horni sínu, leikin voru fimm tóndæmi.
Tónlist:
Reconvexo - Maria Bethania
Sabado em Copacabana - Maria Bethania
Luftig Grøn - Dorthe Højland Group
Blid Brus - Dorthe Højland Group
J’en ai azzez vu - Metronomy & Sebastien Tellier
Frumflutt
30. ágúst 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunvaktin
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.