Vorverkin í garðinum, siðareglur ráðherra og vefsvæðið island.is
Á dögunum kom út handbók um siðareglur ráðherra. Í henni eru siðareglurnar tíundaðar; þær eru útskýrðar og dæmi tekin um góða siði og ósiði. Handbókin er í raun leiðarvísir fyrir ráðherra um umgengi um valdið. Páll Rafnar Þorsteinsson heimspekingur útbjó handbókina; hans helstu svið í heimspekinni eru sanngirni, siðvit og réttlæti; allt þetta hlýtur góður ráðherra að hafa að leiðarljósi í störfum. Páll Rafnar var hjá okkur og fræddi hlustendur um siðareglur ráðherra.
Stafræn stjórnsýsla er í hraðri þróun. Hvort sem ætlunin er að sækja um nýtt ökuskírteini, bjóða sig fram til forseta eða safna undirskriftum þá er vettvangurinn sá sami, vefsvæðið Ísland.is. Birna Íris Jónsdóttir framkvæmdastjóri Stafræns Íslands kom til okkar að loknum morgunfréttum klukkan átta og sagði frá þessari stafrænu miðstöð hins opinbera sem verður sífellt stærri hluti af okkar tilveru.
Vorið er á næsta leiti og það er tímabært að huga að plöntunum og garðverkunum. Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur var með okkur í síðasta hluta þáttarins og við fórum yfir það sem þarf að gera í garðinum nú þegar glittir í vorið, í það minnsta sums staðar á landinu.
Fast car - Chapman, Tracy.
Alf is coming to town - Scofield, John.
You can call me Al - Simon, Paul.
Frumflutt
12. apríl 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunvaktin
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.