Í byrjun þáttar var sagt frá Bandaríkjaför Sveins Björnssonar forseta í ágúst 1944, fyrir áttatíu árum. Hann fór til Washington í boði Roosevelts Bandaríkjaforseta. Þá var Halldórs Bragasonar, Dóra, minnst með blúslagi sem hann lék ásamt Guðmundi Péturssyni á Blúshátíð 2004.
Þórarinn Eldjárn rithöfundur kom í kaffi og spjallaði um heima og geima. Hann varð 75 ára í gær, 50 ár eru síðan fyrsta bókin hans, Kvæði, kom út og nýjasta verkið, Dótarímur, kom úr prentsmiðju á dögunum. Þórarinn efnir til Listahátíðar í garðinum á heimili þeirra Unnar Ólafsdóttur við Ásvallagötu 12 á morgun Menningarnótt.
Á eynni Fanø úti fyrir Jótlandi situr Hrund Hlöðversdóttir við skriftir þessa dagana. Hún sagði frá lífinu á Fanø, skrifunum og fleiru og spilaði aðeins á harmonikkuna sína.
Í lok þáttar fjallaði Magnúr Lyngdal um sígilda tónlist, eins og venjulega á föstudögum. Að þessu sinni var Ave Maria viðfangsefni hans, leikin voru sex tóndæmi.
Vorar samt - María Markan,
Love in vain - Halldór Bragason og Guðmundur Pétursson,
Blues before sunrise - Ray Charles.