Boðið var upp á bland í poka á síðustu Morgunvakt ársins.
Sagt var frá stofnun Verslunarfélags Steingrímsfjarðar fyrir 125 árum og tíðarfari, aflabrögðum og landbúnaði á Ströndum 1898. Leikið var viðtal frá í sumar við Gísla Einarsson sjónvarpsmann um mun á landsmönnum eftir búsetu.
Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar, talaði frá Hallormsstað um Skriðuklaustur og Gunnar Gunnarsson skáld og konu hans Franzisku. Í máli hans kom m.a. fram að bækur Gunnars hafa verið gefin út víða um heim á síðustu árum og Aðventa t.d. þýdd á Ítölsku og arabísku.
Þá var leikið brot úr Áramótaskaupi Útvarpsins 1982.
Smooth operator - Sade,
Vetrarsól - Björgvin Halldórsson og Sinfóníuhljómsveit Íslands,
Halló, halló, halló - Stuðmenn,
Andar í útlegð - Mógil,
Hvað ertu að gera á gamlárs? - Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius,
Í löngu máli - Una Torfadóttir.
Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.