Snemma í þættinum var fluttur fyrsti hluti stuttþáttaraðar Árna Snævarr, upplýsingafulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum, um Mannréttindayfirlýsingu SÞ í tilefni þess að 75 ár eru liðin frá samþykkt hennar. Árni ræddi stuttlega við Val Ingimundarson prófessor, Kára Hólmar Ragnarsson lektor og Rósu Magnúsdóttur prófessor.
Í spjalli um efnahag og samfélag fjallaði Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, m.a. um fyrirfram greiddan arf en mikið hefur verið um slíkt að undanförnu sem sést best á auknum tekjum ríkissjóðs af erfðafjárskatti. Einnig var rætt um aukin framlög ríkisins til sveitarfélaga vegna málaflokks fatlaðs fólks og Kauphallarskráningu Ísfélagsins.
Arthúr Björgvin Bollason sagði tíðindi frá Þýskalandi. Tillögur um að gangsetja að nýju kjarnorkuver í Þýskalandi eru efst á baugi í stjórnmálunum enda umdeildar mjög. Úlfar og almenningssamgöngukerfið í Berlín voru einnig til umræðu.
Öld var á laugardag frá fæðingu Mariu Callas sem var fremsta sópransöngkona heims á sinni tíð. Ævi hennar var erfið og einkenndist af miklum átökum. Magnús Lyngdal Magnússon, óperuunnandi og tónlistargagnrýndandi Morgunblaðsins, sagði frá Callas.
Tónlist:
In the mood - Glenn Miller,
Buttons and bows - Dinah Shore,
Einnig voru leikin brot úr upptökum með Mariu Callas syngja verk eftir Bellini, Verdi og Puccini.
Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.