
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Undanfarna mánuði hafa fréttir af hitabylgjum, gróðureldum, flóðum og ýmiss konar öfgum í veðri verið tíðar. Þrátt fyrir það hefur umfjöllun um hlýnun jarðar dregist saman víða. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands, var fyrsti gestur þáttarins.
Björn Malmquist fréttamaður í Brussel ræddi um kosningar í Þýskalandi í gær og um heimsókn forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til Grænlands.
Þingkosningar verða í Svíþjóð á sunnudaginn. Lengi vel sýndu skoðanakannanir að ríkisstjórnin væri kolfallin en undanfarið hefur dregið saman með blokkunum tveimur sem eru ráðandi í stjórnmálum. Síðustu dagar kosningabaráttunnar eru spennandi, og við ræddum um útlitið og stóru kosningamálin við Gunnhildi Lily Magnúsdóttur, dósent í stjórnmálafræði við háskólann í Malmö.
Tónlist;
Buddy Holly - That'll be the day.
Buddy Holly - Heartbeat.
Buddy Holly - Raining in my heart.
Buddy Holly - Early in the morning.
Elise Einarsdotter, Olle Steinholtz, Lena Willemark, Mikael Nilsson - Trasten.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.