Morgunvaktin

Má hver sem er sigla hvar sem er?

Blómlegar byggðir og öflugir byggðakjarnar, bætt lífskjör landsmanna og búsetufrelsi - með sem jöfnustu aðgengi grunnþjónustu og fjölbreyttum tækifærum, og grunnþjónusta í nærsamfélaginu. Svona hljómar framtíðarsýn stjórnvalda í drögum nýrri byggðaáætlun sem hefur verið birt. Við skoðuðum byggðamálin með Þóroddi Bjarnasyni, prófessor í félagsfræði.

Enn dólar skipið Bandero í íslenskri landhelgi. Það er hér til stöðva hvalveiðar. Hvalur 8 og 9 eru hins vegar í höfn; það er bræla. En Bandero vera á íslensku hafsvæði? Mega allir sigla allsstaðar? Við sökktum okkur ofan í haf- og siglingarétt með Bjarna Magnússyni lögmanni og sérfræðingi á því sviði.

Við rifjuðum svo upp söguna af Mt. Rushmore, þar sem höggmyndir af fjórum Bandaríkjaforsetum eru. Vera Illugadóttir þekkir þá sögu.

Tónlist:

Tríó Árna Ísleifs, Gerður Benediktsdóttir - Æ, ó, aumingja ég.

Paul Simon - 50 ways to leave your lover.

Björn Thoroddsen - I'll follow the sun.

Bob Dylan - I feel a change comin' on.

Birt

1. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,