Morgunvaktin

Páfinn, dönsk mál og málefni eldri borgara

Leó fjórtándi hefur verið í embætti páfa í rétt tæpt ár. Hann talaði fyrir friði um daginn og uppskar skeytasendingu frá landa sínum Bandaríkjaforseta. Páfi lætur það ekki á sig fá. Við ræddum um páfann við Jörgen Elí Jamin, prest kaþólskra á Norðurlandi.

Borgþór Arngrímsson sagði okkur frá dönskum málefnum. Ríkisstjórn hefur ekki verið mynduð eftir kosningar en deilt er meðal annars um efnahagsmál. Borgþór sagði líka frá skipasmíðum, úlfum og svínum.

Björn Snæbjörnsson og Sigrún Camilla Halldórsdóttir voru síðustu gestir þáttarins, en þau eru í stjórn Landsambands eldri borgara, Björn formaður og Sigrún gjaldkeri. Þau ræddu um málin sem brenna á eldri borgurum, en í dag fer fram landsfundur sambandsins.

Tónlist:

Magnús og Jóhann - Jörðin sem ég ann.

Birt

29. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,