Bresk stjórnmál, íslensk list í Berlín og Circolo Scandinavo
Kosið verður til breska þingsins 4. júlí. Hjörtur J. Guðmundsson, alþjóðastjórnmálafræðingur, ræddi um stöðu Rishi Sunaks, forsætisráðherra og leiðtoga Íhaldsflokksins, og helstu stefnumál flokksins.
Í Berlínarspjalli fjallaði Arthur Björgvin Bollason um niðurstöður Evrópuþingskosninganna í Þýskalandi. Stjórnarflokkarnir fengu skell. Hann sagði líka frá sýningum á verkum tveggja íslenskra myndlistarkvenna í Berlín, þeirra Katrínar Ingu og Önnu Líndal, og ræddi stuttlega við þær og einnig Guðnýju Guðmundsdóttur sem starfrækir gallerí í borginni.
Í síðasta hluta þáttarins var fjallað um norrænu listamannaresidensíuna Circolo Scandinavo í Róm. Hún hefur verið starfrækt frá 1860 en glímir nú við fjárhagserfiðleika og býður því tugi teikninga eftir þekkta norræna listamenn til kaups hjá uppboðshúsinu Bruun Rasmussen.
Tónlist:
Restless mind - Marius Ziska,
Lush life - Sarah Vaughan,
Rio bravo - Dean Martin,
Something - Bítlarnir,
Soft winds - Niels-Henning Ørsted Pedersen og Oscar Peterson.
Frumflutt
11. júní 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunvaktin
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.