Morgunvaktin

Heimsgluggi, Giséle Pelicot og áramótaávörp

Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann í fyrsta sinn á nýju ári og ræddi horfur í alþjóðamálum.

Kristín Jónsdóttir í París sagði frá áhrifum Giséle Pelicot á Frakkland og Frakka. Giséle hefur hlotið mikið lof og þakkir fyrir ákveða krefjast ekki nafnleysis í máli fyrrverandi eiginmanns síns og 50 annarra karla, sem allir voru sakfelldir fyrir kynferðisbrot gegn henni fyrir jól.

Eva Heiða Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, fjallaði um áramótaávörp nýs forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, og nýs forsætisráðherra, Kristrúnar Frostadóttur.

Tónlist:

Ingibjörg Þorbergs, Marzbræður - Man ég þinn koss.

Sigrún Jónsdóttir, Ragnar Bjarnason - Ljúfa vina.

Frumflutt

2. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,