Tollar, Evrópumál og heilabilun
Bandaríkjastjórn notar tolla og hótanir um tolla í pólitískum tilgangi. Tollar hafa um aldir verið notaðir til tekjuöflunar, en þar til nýverið hafa þjóðir heims lagt mikla vinnu í…
Drónaflug við flugvelli á Norðurlöndunum, sérstaklega í Danmörku, var til umfjöllunar í Heimsglugganum. Sömuleiðis ræddi Bogi Ágústsson um stöðu ríkissambands Dana, Færeyinga og Grænlendinga, og um yfirlýsingar Trumps Bandaríkjaforseta síðustu daga.
Ryder Cup golfmótið hefst í Bandaríkjunum á morgun og við ræddum um golf við Úlfar Jónsson, sem lýsir mótinu.
Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur var síðasti gestur þáttarins. Haustlægðirnar koma nú í hrönnum, en sumarið var gott. Lítið er hægt að spá fyrir um veturinn.
Tónlist:
KK - Bráðum vetur.
Marína Ósk - It's Autumn.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.