Framfarir í krabbameinslækningum og ástæður þess að okkur líður vel í náttúrunni
Fjallað var um framfarir í læknavísindum. Hafnar eru tilraunir með bólusetningar við lungnakrabbameini. Sigurdís Haraldsdóttir yfirlæknir sagði okkur frá þessum tilraunum og öðru tengdu.
Borgþór Arngrímsson fór yfir það sem er efst á baugi í Danmörku. Áreiti gegn starfsfólki stjórnmálaflokksins Moderaterne var til umfjöllunar, verðhækkun á súkkulaði og ýmislegt fleira.
"Náttúran læknar og hjálpar okkur að lifa merkingarbæru og gleðilegu lífi." Um þetta má lesa í nýjasta tölublaði Bændablaðsins. Steinunn Ásmundsdóttir blaðamaður sagði frá rannsóknum bandaríska sálfræðingsins Kris Abrams um ágæti náttúrunnar fyrir okkur fólki.
Tónlist:
Birtuskil - Veitan,
Wake me up - Norah Jones,
Canciones Populares Espanolas - Istvan Várdai og Julien Quentin,
Nú sefur jörðin - Sigmar Þór Matthíasson,
The folks who live on the hill - Arthur Prysock.
Frumflutt
4. sept. 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunvaktin
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.