Morgunvaktin

Alþjóðamál, tækjakostur heilbrigðisstofnana og sígild tónlist

Alþjóðamálin voru áfram til umfjöllunar og gestur okkar í dag var Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs - samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál. Í ljósi atburða og yfirlýsinga síðustu daga ræddum við um framtíð Atlantshafsbandalagsins og vestrænnar samvinnu, og stöðu Íslands í umheiminum.

Svo var rætt um tækjabúnað heilbrigðisstofnana úti um landið. Þær samtals 77 milljónir í byrjun árs til endurnýja tæki. Tæpur helmingur fjárins fer í kaup á varaaflsstöðvum. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir víða uppsöfnuð innviðaskuld. Við töluðum við Jón Helga Björnsson, forstjóra heilbrigðisstofnunar Norðurlands, um þessa uppsöfnuðu skuld; um tækjakost og tækjaskort.

Umfjöllun um sígilda tónlist var svo á sínum stað. Í dag gerði Magnús Lyngdal skil stefi sem talið er hafi fyrst komið fram á þrettándu öld og hefur gengið í gegnum tónlistarsöguna allar götur síðan. Dies Irae nefnist það; við heyrðum það meðal annars í meðförum Benediktsmúnka, Chicago-sinfóníunnar og Vladimirs Ashkenazys.

Tónlist:

Joan Baez - Diamonds and rust.

June McDoom, Kate Davie - Take this stone.

Frumflutt

9. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,