Fjallað var um ástand mála í Nagorno-Karabakh og það sett í sögulegt ljós. Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði við HÍ, fór aftur til nítjándu aldar til að útskýra átök Armena og Azera.
Í spjalli um stjórnmál í Evrópu sagði Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, m.a. frá fordæmingu leiðtoga í álfunni og Evrópusambandsins á loftárásum Hamas á Ísrael. Hann fjallaði líka um kosningar hér og þar í Evrópu, bæði nýliðnar og væntanlegar.
Í dag hefst atkvæðagreiðsla um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar. Lilja Magnúsdóttir, oddviti á Tálknafirði, spjallaði um sameininguna og ávinning af henni.
Tónlist:
I?m your man - Leonard Cohen,
I got it bad and that ain?t good - Keith Jarrett,
I gotta right to sing the blues - Count Basie og Sarah Vaughan,
Honeysucle Rose - Ben Webster.
Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.