Morgunvaktin

Efnahagsmál, dönsk málefni og norski hálf-prinsinn

Vaxtaákvörðunardagur er í dag, meginvextirnir standa í 7,25 prósentum, og þeim var haldið óbreyttum. Áður en það kom í ljós var Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, hjá okkur og fór yfir stöðu og horfur í efnahagsmálum.

Norræn málefni voru á dagskrá á níunda tímanum. Borgþór Arngrímsson fór yfir það sem er efst á baugi í Danmörku, og Vera Illugadóttir sagði okkur frá Mariusi Borg Høiby stjúpsyni krónprins Noregs. Marius er fyrir dómi í heimalandinu, ákærður fyrir á fjórða tug alvarlegra brota.

Tónlist:

Óskar Einarsson, Kristinn Svavarsson - Blendnar tilfinningar.

Óskar Einarsson, Kristinn Svavarsson - Will you still love me tomorrow.

Jakob Haugaard - Ta' en öl.

Ola Bremnes - Har du fyr.

Birt

4. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,