Það eru víða stríð og átök í heiminum í dag. Mest fer fyrir hernaði Rússa gegn Úkraínu, og átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Friðarumleitanir hafa ekki borið árangur; ekki enn – en er von? Við fórum yfir stríð og frið í heiminum með Silju Báru Ómarsdóttur, prófessor í stjórnmálafræði.
Votlendi sem er stærra en tveir hektarar nýtur sérstakrar verndar í náttúruverndarlögum. Í nýútkominni meistararitgerð úr líffræði frá Háskóla Íslands kemur fram að minni votlendisblettir, þar á meðal blettir vel undir tveimur hekturum, geta gegnt mikilvægu hlutverki fyrir fuglalíf landsins. Aron Alexander Þorvarðarson líffræðingur sagði okkur frá rannsókn sinni á tengslum flatarmáls votlendis og fjölbreytni og þéttleika fugla.
Í Grindavík hefur Fisktækniskóli Íslands verið starfræktur um árabil. “Framtíðin felst í hafinu,” segja þau í Fisktækniskólanum: “í fólkinu, tækifærunum, þekkingarsamfélaginu og draumunum.” Ástand mála í Grindavík hefur auðvitað haft áhrif á skólastarfið en það hjálpar til að nú á vorönn eru nemendur í verklegu námi hjá sjávarútvegsfyrirtækjum vítt og breitt um landið. Klemenz Sæmundsson, skólameistari Fisktækniskólans var til viðtals á Morgunvaktinni.
Hawaiian hospitality - Iona, Andy and his Islanders, Armstrong, Louis.
The spirit – Pops Mohamed.
Lívíð er júst tað, sum tað er - Kári Sverrisson.
Stingum af - Mugison