Tollar, Evrópumál og heilabilun
Bandaríkjastjórn notar tolla og hótanir um tolla í pólitískum tilgangi. Tollar hafa um aldir verið notaðir til tekjuöflunar, en þar til nýverið hafa þjóðir heims lagt mikla vinnu í…
Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans kom á Morgunvaktina og ræddi um húsið við Austurstræti sem bankinn hefur nú á sölu.
Guðbrandur Benediktsson og Sumarliði Ísleifsson sögðu frá nýrri sýningu í Sjóminjasafninu. Franski herlæknirinn og ævintýramaðurinn Paul Gaimard kom hingað til lands árin 1835 og 1836 með hópi manna sem rannsökuðu menningu, mannlíf og náttúru.
Magnús Lyngdal kom til okkar í síðasta hluta þáttarins og sagði frá fiðluleikaranum Idu Haendel.
Tónlist:
Alfreð Clausen - Þórður sjóari.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.