Kjaraviðræður hjá hinu opinbera, Evrópumál og stytting framhaldsskóla
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, kom á Morgunvaktina og ræddi um kröfugerð BSRB í komandi kjarasamningsviðræðum. Samningar á opinberum vinnumarkaði losna í lok mánaðarins. Hún talaði líka um endurmat á virði kvennastarfa og nauðsyn þess að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólavistar.
Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, ræddi um komandi kosningar í Portúgal og um þýðu í samskiptum Póllands við Evrópusambandið.
Kolfinna Jóhannesdóttir, skólameistari Kvennaskólans í Reykjavík, ræddi svo um styttingu framhaldsskólanna, sem hefur verið töluvert í umræðunni að undanförnu.
Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Tónlist:
Simone, Nina - Why must your love well be so dry.
Simone, Nina - I Wish I Knew (How It Would Feel To Be Free).
Bruni, Carla - Quelqu'un m'a dit
Abba - Waterloo.
Frumflutt
4. mars 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunvaktin
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.