Allsherjar endurskoðunar þörf í kerfum og samfélaginu
Bogi Ágústsson settist við Heimsglugginn og á dagskrá voru bresk stjórnmál. Boris Johnson kom í gær fyrir sérstaka rannsóknarnefnd vegna viðbragða stjórnvalda við Covid-faraldrinum og baðst afsökunar. Tveir aðrir fyrrverandi ráðherrar Íhaldsflokksins komu einnig við sögu, annar sagði af sér í gærkvöldi.
Íslenskum krökkum gengur ekki nógu vel í skólanum. Það sýna nýbirtar niðurstöður alþjóðlega Pisa-samanburðarins. Sérfræðingar leggja til breytingar til úrbóta - við heyrum hverjar þær eru. Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor á menntavísindasviði Háskóla Íslands, ræddi þessi mál.
Ísfirðingar vilja ekki að fleiri skemmtiferðaskip leggi að bryggjum bæjarins en undanfarin sumur - það er komið að þolmörkum, segja þeir. Þetta sýnir ný rannsókn. Við ræddum um þolmörkin í ferðaþjónustunni - hvað þola bæir og náttúran? Við veltum því fyrir okkur með Önnu Karlsdóttur, lektor í mannvistarlandfræði og ferðamálafræði.
Árni Snævarr upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum hélt áfram að fjalla um mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. Í dag var fjallað um áhrif yfirlýsingarinnar.
Tónlist:
Waits, Tom - Little trip to heaven (on the wings of your love).
Armstrong, Louis and his Orchestra - Thankful.
Frumflutt
7. des. 2023
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunvaktin
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.