Morgunvaktin

Vald hinna veiku, Berlínarspjall og fjölmiðlar

Guðni Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, hefur ekki setið með hendur í skauti eftir hann lét af forsetaembættinu fyrir tveimur árum. Í dag kemur út eftir hann bókin Vald hinna veiku, saga landhelgismálsins 1971-1974.

Arthúr Björgvin Bollason sagði frá viðbrögðum Þjóðverja við niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB hér á landi, ræddi um komandi kosningar í Sachsen-Anhalt og um margt mislukkaða sameiningu þýsku ríkjanna tveggja.

Kaflaskil urðu í íslenskri fjölmiðlun í gær þegar síðasti sjónvarpsfréttatími Sýnar fór í loftið. Við ræddum um stöðuna á íslenskum fjölmiðlamarkaði, mikilvægi hefðbundinna fjölmiðla og lýðræði við Jón Gunnar Ólafsson, lektor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.

Tónlist:

Bítlarnir - Do you want to know a secret.

Dúkkulísur - Svart-hvíta hetjan mín.

Birt

1. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,