Morgunvaktin

Öryggis- og varnarmál, Berlínarspjall og Landhelgisgæslan

Útgjöld Íslands til öryggis- og varnarmála munu aukast um tugi milljarða króna á næstu árum, enda hefur ríkið skuldbundið sig til að verja einu og hálfu prósenti af landsframleiðslu í varnartengd verkefni. Það þarf að vera alveg ljóst í hvað peningarnir fara og hvers vegna, en þannig hefur það ekki verið. Kristinn Hróbjartsson og Ragnar Hjálmarsson frá hugveitunni Vörðu benda á þetta í umsögn um fjárlagafrumvarpið og þeir ræddu öryggis- og varnarmál, gagnsæi og fleira.

Arthúr Björgvin Bollason sagði meðal annars frá réttarhöldum vegna skemmdarverkanna á Nord-stream gasleiðslunni fyrir fjórum árum; Úkraínumaður er fyrir rétti, grunaður um verknaðinn.

Guðni Einarsson blaðamaður er höfundur bókar um Landhelgisgæsluna. Aldarafmæli hennar var fagnað fyrr á árinu og geymir bókin svipmyndir úr merkri og viðburðaríkri sögu.

Tónlist:

Joni Mitchell - California.

Duke Ellington og fl. - Goin' out the back way.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,