Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Vegamál, upplausn í þýskum stjórnmálum og Vallanes

Við ræddum um umfangsmestu samgönguframkvæmd landsins á sínum tíma; Vestfjarðagöngin - 30 ár eru síðan þau voru tekin í gagnið. Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi þingmaður Vestfjarða, rifjaði upp þá stóru stund þegar umferð var hleypt um göngin og við röbbuðum líka um vegagerð og -bætur vítt og breitt.

Landslagið í þýskum stjórnmálum er breytt eftir þrennar fylkiskosningar í þessum mánuði. Merz kanslari ætlar sér að þrauka áfram í embætti þó að flokkur hans hafi fengið verstu útreiðina. Arthúr Björgvin Bollason fór yfir stormasama daga í Þýskalandi.

Hjónin í Vallanesi á Fljótsdalshéraði, Eygló Björk Ólafsdóttir og Eymundur Magnússon, hafa náð framúrskarandi árangri í lífrænni framleiðslu og voru verðlaunuð fyrir það á lífræna deginum um helgina. Við slógum á þráðinn til Eymundar og spjölluðum um lífræna ræktun og lífið og tilveruna.

Tónlist:

Engilbert Jensen - Regndropar falla (við hvert fet).

Engilbert Jensen - Sextán týrur.

Rúnar Þór Pétursson - Brotnar myndir.

Nena - 99 luftballons.

Tom Waits - I hope that I don't fall in love with you.

John Coltrane - Alabama.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,