Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Mikilvægt skref fyrir Grindavík

Aðstæður í Grindavík eru nú taldar sambærilegar öðrum byggðarlögum sem búa við langvarandi náttúruvá. Hægt er að taka næstu skref við endurreisn Grindavíkur, meðal annars með því að hefja undirbúning að því að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur húsin sín í bænum. Við ræddum við Pétur Markan, bæjarstjóra í Grindavík, um framtíðina.

Öld er í dag liðin frá fæðingu John Coltrane, þess snjalla djassara. Við notuðum tilefnið og fjölluðum svolítið um hann - Pétur Grétarsson leit við með stiklur úr ævisögu saxófónleikarans, hljómsveitastjórans og tónskáldsins og setti auðvitað nokkrar perlur á fóninn.

Í lok síðasta árs voru tæplega tuttugu þúsund einstaklingar á lífi hér á Íslandi sem einhvern tímann hafa fengið krabbamein. Sigríður Gunnarsdóttir forstöðumaður Rannsóknaseturs hjá Krabbameinsfélaginu og prófessor við Háskóla Íslands sagði okkur frá niðurstöðum umfangsmikillar rannsóknar sem gerð var á lífsgæðum þessara einstaklinga og hvað verður gert í kjölfarið.

Tónlist:

Elín Sigurvinsdóttir, Agnes Löve - Haustvísa.

Kristinn Sigmundsson, Jónas Ingimundarson - 11 Haustvísa.

Anna Pálína Árnadóttir - Haustvísa.

Guðmundur Andri Thorsson - Haustvísa.

Randy Travis - Here in my heart.

John Coltrane ofl. - Theme for Ernie.

Duke Ellington & John Coltrane - Big Nick.

John Coltrane ofl. - Autumn serenade.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,