Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Dauðarefsingar, Berlínarspjall og Akureyrarakademían

Misheppnuð aftaka á konu sem dæmd hafði verið til dauða í Bandaríkjunum hefur vakið upp mikla umræðu um dauðarefsingar og gagnrýni á framkvæmdina. Við töluðum um þessi mál þegar Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Amnesty á Íslandi, kom til okkar.

Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur meðal annars frá ávarpi Steinmeiers forseta á nýliðnum sameiningardegi Þýskalands. Steinmeiers lætur af embætti snemma á nýju ári.

Við skyggndumst inn í líf og samfélag sjálfstætt starfandi fræðimanna á Akureyri. Þeir starfrækja saman Akureyrarakademíuna og hafa gert í tuttugu ár. Sigurgeir Guðjónsson sagnfræðingur sagði okkur frá rannsóknum og grúski í Sunnuhlíð - þar eru húsakynni Akureyrarakademíunnar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,