
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Það er óskandi að vel viðri 12. ágúst á næsta ári. Þá verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi. Landsmenn munu án efa fylgjast með og von er á fjölda fólks utan úr heimi. Við spjölluðum um almyrkvann á eftir; bæði fyrirbrigðið á himni og undirbúning á jörðu niðri. Með okkur voru Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari og Gunnþórunn Bender, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar.
Þórhildur Ólafsdóttir talaði við okkur frá Úganda og sagði okkur frá miklum hátíðahöldum þar í landi í gær, sem og ætlaðri hryðjuverkaárás sem herinn kom í veg fyrir. Hún sagði líka frá ótta Úgandabúa við vatn.
Á næstu vikum hefjast framkvæmdir í Fljótsdal, rétt utan við Skriðuklaustur, þar sem til stendur að reisa nýja íbúabyggð. Skarphéðinn Smári Þórhallsson landfræðingur á Egilsstöðum hefur unnið að uppbyggingunni undanfarin ár og sagði okkur frá.
Tónlist:
Hljómar - Ástarsæla.
Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, Vilhjálmur Vilhjálmsson - Það er bara þú.
Una Torfadóttir - En.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.