Árás á spítala á Gaza fyrr í vikunni vakti upp gríðarlega reiði og hefur verið fordæmd sérstaklega. Ástæðan er ekki síst sú að það má ekki sprengja upp sjúkrahús - ekki heldur í stríði. Í stríði gilda nefnilega reglur. Hvað má og hvað má ekki? Og hvenær er stríð stríð? Við fórum yfir það með Kára Hólmari Ragnarssyni, lektor í lögfræði við Háskóla Íslands.
Það getur verið erfitt fyrir sálina að fylgjast með hörmungum heimsins, hvort sem er vegna frétta hér heima eða úti í heimi. Hvernig er best fyrir okkur að takast á við þetta? Þóra Sigfríður Einarsdóttir sálfræðingur ræddi þetta við okkur.
Við fórum yfir í allt önnur mál í síðasta hluta þáttarins. Þá töluðum við um bækur. Við rýndum í jólabækurnar og greinum jólabókaflóðið sem er á næsta leiti með þeim Önnu Leu Friðriksdóttur bókaútgefanda hjá Sölku og Kolbrúnu Ósk Skaftadóttur bókastjóra hjá Bókabeitunni.
Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir
Tónlist:
Miller, Glenn and his Orchestra, Eberle, Ray - It's a blue world.
Sálgæslan Hljómsveit - Út í myrkrið.
Tolentino, Ife - Distante Canção.
Svavar Knútur Kristinsson, Kristjana Stefánsdóttir - Þín hvíta mynd.
Haden, Charlie, Jarrett, Keith - Don't ever leave me.