Bandarísk stjórnmál, Berlínarspjall og Kvennaskólinn 150 ára
Fimm vikur eru til kjördags í Bandaríkjunum. Donald Trump og Kamala Harris eru í framboði til embættis forseta. Þau eru gjörólík í háttum og fasi en hvað skilur á milli í pólitíkinni? Já hverjar eru helstu áherslur þeirra og loforð? Við skoðuðum það með Guðmundi Hálfdánarsyni, prófessor í sagnfræði, sem lærði í Bandaríkjunum á sínum tíma og fylgist vel með stjórnmálunum þar í landi.
Í Berlínarspjalli fjallaði Arthur Björgvin Bollason um stjórnmálin í Þýskalandi; Græningjar eru í stórkostlegum vandræðum sem ekki sér fyrir endann á, tugir þúsunda hlupu maraþon um götur höfuðborgarinnar á sunnudag og Sjón var þar á dögunum og las úr nýútkominni þýskri þýðingu á Næturverkum.
150 ár eru í dag síðan Kvennaskólinn í Reykjavík var settur í fyrsta sinn. Fyrsta veturinn voru tíu stúlkur við skólann en dag eru nemendur næstum sjö hundruð. Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari kom til okkar og sagði frá lífinu í Kvennó.
Tónlist:
Kristofferson, Kris - Help me make it through.
Kristofferson, Kris - New game now.
Ríó tríó - Eina nótt.
Kór Kvennaskólans í Reykjavík - Fagra veröld.
Frumflutt
1. okt. 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunvaktin
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.