Tollar, Evrópumál og heilabilun
Bandaríkjastjórn notar tolla og hótanir um tolla í pólitískum tilgangi. Tollar hafa um aldir verið notaðir til tekjuöflunar, en þar til nýverið hafa þjóðir heims lagt mikla vinnu í…
Við fjölluðum um eitt af höfuðritum íslenskra bókmennta, sjálfa Laxdæla sögu, með Torfa Tulinius prófessor í íslenskum miðaldabókmenntum. Málþing um Laxdælu verður á morgun.
Umfjöllun um samgöngur til og frá Keflavíkurflugvelli var fram haldið. Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia kom til okkar.
Óli Þór Árnason veðurfræðingur var á línunni til að fara yfir veðrið, bæði framundan og óvenjulegu snjókomuna fyrr í vikunni.
Og við heyrðum óumdeildar upptökur af sígildri tónlist sem Magnús Lyngdal valdi.
Tónlist:
Eyjólfur Kristjánsson - Gott.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.