Morgunvaktin

Persónuupplýsingar, þýsk málefni og Jónasarstofa á Hrauni í Öxnadal

Rætt var um persónuupplýsingar og persónuvernd en í dag er alþjóðlegi persónuverndardagurinn. Meðvitað eða ómeðvitað skilur fólk eftir sig upplýsingar um sjálft sig í forritum og vefsíðum á internetinu. Þessum upplýsingum er safnað saman og þær seldar fyrirtækjum sem sjá sér hag í vita sem mest um fólk, um þarfir þess og langanir, til reyna selja því vöru eða þjónustu. Rebekka Rán Samper, lögfræðingur og verkefnastjóri hjá Persónuvernd, sagði frá þeim lögum sem gilda um vernd persónuupplýsinga og hvatti hlustendur til vera á varðbergi gagnvart söfnun upplýsinga.

Arthur Björgvin Bollason spjallaði um þýsk málefni. Kosningabaráttan er komin á fullt en kosið verður til þýska sambandsþingsins 23. febrúar.

Í ráði er reisa gestastofu á Hrauni í Öxnadal til heiðra minningu Jónasar Hallgrímssonar sem fæddist þar 1807. Hanna Rósa Sveinsdóttir og Gunnar Már Gunnarsson, félagar í Menningarfélaginu Hrauni, sögðu frá áformunum sem miða því miðla fróðleik um fjölbreytt og ríkulegt ævistarf Jónasar.

Tónlist:

Barn - Ragnar Bjarnason,

Rock og cha cha - Ragnar Bjarnason,

Hlið við Hlið - Ragnar Bjarnason,

Án þín - Ragnar Bjarnason og Elly Vilhjálms,

Vísur Íslendinga - Andrea Gylfadóttir og Tríó Björns Thoroddsen.

Frumflutt

28. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,