Bjarni Már Magnússon lagaprófessor við Háskólann á Bifröst var fyrsti gestur þáttarins, en hann ræddi við okkur um lagaþekkingu almennings. Við eigum að þekkja lögin, en gerum það kannski ekki nógu vel. Stundum dugar að beita almennri skynsemi, en kannski ekki alltaf.
Mál Yazans Tamimi og fjölskyldu hans var til umfjöllunar. Þær Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, og Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna, komu til okkar og ræddu um málið sjálft og um pólitíkina í því.
Í síðasta hluta þáttarins lékum við fuglalög og spiluðum brot úr viðtali við Jóhann Óla Hilmarsson fuglafræðing. Jóhann Óli hlaut á mánudaginn náttúruverndarviðurkenningu sem kennd er við Sigríði í Brattholti.
Tónlist:
Horowitz, Vladimir - Mazurka, op.56 no.3 in C minor.
Lars Jansson Trio, Sigurður Flosason - Black sand.
Tendra - Lóan er komin.
Savanna tríóið - Sá ég spóa.
Bjarni Frímann Bjarnason, Herdís Anna Jónasdóttir - Fuglinn í fjörunni.
Beatles, The - Blackbird.
Egill B. Hreinsson, Tómas R. Einarsson, Einar Scheving, Óskar Guðjónsson - Kvæðið um fuglana.