Í spjalli um efnahag og samfélag ræddi Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, m.a. um kaup íslenskra lífeyrissjóða á rúmlega 1.600 íbúðum af norsku félagi en áður voru þær í eigu Heimavalla og enn áður í eigu Íbúðalánasjóðs. Áform ríkisstjórnarinnar um sölu á eftistandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka voru líka rædd og staða ÍL-sjóðs málsins.
Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, er gagnrýndur í heimalandinu fyrir að hafa hitt emírinn af Katar á dögunum en sá styður Hamas. Scholz er nú kominn til Ísraels en þýsk yfirvöld styðja Ísraelsstjórn. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá í Berlínarspjalli. Bókamessan í Frankfurt og sýning um ævi og störf ljóðasöngvarans Wolf Biermann voru einnig til umfjöllunar.
Í lok þáttar var rætt við Höllu Jónsdóttur endurmenntunarstjóra en 40 ára afmæli Endurmenntunar HÍ var fagnað á dögunum. Tugir þúsunda hafa setið námskeið Endurmenntunar sér til gagns eða gamans á árunum 40.
Tónlist:
To you, sveetheart, aloha - Louis Armstrong,
Love me or leave me - Lester Young & Teddy Wilson Quartet,
I hope that I don?t fall in love with you - Emilíana Torrini.
Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Frumflutt
17. okt. 2023
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunvaktin
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.