Kastljósið beinist að Íslandi og krísu Evrópusambandsins
,,Skilaboðin frá Íslandi”; ,,Þetta er synd fyrir Evrópu”; ,,Sterk tengsl Íslands við Evrópusamband fela í sér að niðurstaðan er ekki sambærileg við Brexit” eru nokkrar af þeim fyrirsögnum sem birst hafa í dagblöðum í Evrópu um þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi á laugardaginn.
Ísland, og fréttir frá Íslandi, eru ekki til umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum á hverjum degi. Síðustu daga hefur þetta hins vegar verið raunin.
Líklega þarf að fara aftur til ársins 2016 til að finna sambærilegt umfang af fréttum í erlendum miðlum um eitt mál sem tengist Íslandi og síðustu daga. Þetta var þegar íslenska landsliðið lagði enska landsliðið í Evrópukeppninni í fótbolta og eins var talsverð umfjöllun um Ísland erlendis út af Panamaskjölunum svokölluðu skömmu áður.
Túlkanir og greiningar á niðurstöðunni hafa verið allt frá því að Íslendingar hafi hafnað Evrópu og yfir í það að Ísland sé alls ekki að gera það þar sem landið sé þegar í djúpri samvinnu við Evrópusambandið í gegnum EES-samninginn og Schengen.
Rætt er við hagfræðinginn og ritstjórann Ásgeir Brynjar Torfason og alþjóðastjórnmálafræðinginn Guðbjörgu Ríkeyju Thoroddsen um viðbrögðin í erlendum fjölmiðlum við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Birt
2. sept. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.