Þetta helst

Rannsóknin á viðskiptunum með Sóltún

Rannsókn stendur yfir hjá lögreglunni á Suðurnesjum á viðskiptum með hjúkrunarheimilið Sóltún árið 2009.

Rannsóknin byggir á kæru frá fyrrverandi eiganda og eins stofnanda hjúkrunarheimilisins Sóltúns, Jóhanni Óla Guðmundssyni. Hann telur, samkvæmt kærunni sem fréttastofa hefur undir höndum, tveir af núverandi eigendum Sóltúns hafi gerst sekir um meint fjársvik með því hafa ekki greitt umsamið kaupverð upp á tvo milljarða króna fyrir móðurfélag Sóltúns, Öldung hf.

Eva Bryndís Helgadóttir, lögmaður annars eiganda Sóltúns, segir kæran tilhæfulaus með öllu og rannsókn málsins verði vonandi felld niður sem fyrst.

Fjallað er um rannsókn málsins, viðskiptin með Sóltún árið 2009 og sögu þessa þekkta hjúkrunarheimilisins.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Birt

29. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,