Þetta helst

Vitnaleiðslur vegna árásarinnar á þinghúsið 6. janúar

Um þessar mundir fara fram opinberar vitnaleiðslur rannsóknarnefndar Bandaríkjaþings sem rannsakar árásina á þinghúsið í fyrra. Nefndin sakar Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, um hafa skipulagt og undirbúið valdaránstilraun hins æsta múgs sem réðst inn í þinghúsið sjötta janúar 2021.

Trump hafði þá verið með háværar kenningar um Demókratar hefðu beitt kosningasvindli í nýafstöðnum forsetakosningunum - og því hefði Joe Biden sigrað þær. Þessar kenningar viðraði hann við hvern sem heyra vildi. Þá krafðist forsetinn fráfarandi þess Mike Pence, varaforseti hans, kæmi í veg fyrir Biden tæki við embættinu. Þó án árangurs, enda var slíkt aldrei á færi varaforsetans.

Það er meðal annars vegna þessa sem rannsóknarnefndarmeðlimir telja Trump hafa verið einn helsta og mikilvægasta hvatamann árásarinnar. En varaformaður nefndarinnar segir Trump hafi tendrað bálið sem leiddi til innrásarinnar.

Hingað til hafa tveir af sjö dögum opinbera vitnaleiðsla rannsóknarnefndarinnar farið fram - og ýmislegt verið dregið fram í dagsljósið. Þriðja fundinum, sem átti fara fram í dag, var frestað til morguns vegna formsatriða. Þá stendur til varpa ljósi á tilraunir Trumps til knýja Mike Pence, fyrrverandi varaforseta, til koma í veg fyrir þingið staðfesti réttmætt kjör Joes Biden í embætti forseta Bandaríkjanna.

Katrín fer yfir fyrstu tvo daga vitnaleiðslanna, aðdragandann, árásina og eftirmálana.

Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.

Frumflutt

15. júní 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,