Laxeldisfyrirtækið Kaldvík á Austfjörðum á í verulegum fjárhagslegum erfiðleikum um þessar mundir. Ástæðan er fyrst og fremst tap vegna vetrarsára og laxadauða hjá fyrirtækinu. Fyrirtækið þurfti meðal annars að slátra löxum hjá sér sex mánuðum á undan áætlun vegna þessa.
Kaldvík ætlaði sér að framleiða ríflega sextán þúsund tonn af eldislaxi á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en endaði á því að framleiða aðeins 10.700 tonn. Fyrirtækið tapaði rúmlega 26 milljónum evra á ársfjórðungnum, eða 3, 7 milljörðum króna. Til samanburðar hagnaðist Kaldvík um tæplega 10 milljóna evra á fyrsta ársfjórðungi ársins 20025.
Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri Kaldvíkur sem kynnt var í byrjun júní. Fjallað er um uppgjörið og stöðu Kaldvíkur í dag.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Birt
10. júní 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.