Skreiðarþurrkunin á Laugum og Nígeríuviðskipti Íslands
Í síðustu viku var sagt frá því í fréttum að fiskþurrkun Samherja á Laugum í Þingeyjarsveit á Norðurlandi hefði lokað tímabundið. Þetta var í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis-…
Írski fiðluleikarinn Sean Bradley heillaði stjórnendur Sinfóníuhljómsveitar Íslands með leik sínum og hreppti fasta stöðu í sveitinni á níunda áratugnum. Hann lék með Sinfó í rúman áratug og kenndi við tónlistarskóla víða um landið. Árið 2018 hvarf hann sporlaust. Þá virðist hann hafa flogið til Spánar með konu sem leigði af honum íbúð. Vinir Sean vantreysta konunni og kalla eftir svörum um hvað varð um hann.
Við heyrum af rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi og ræðum við nokkra vini Sean.
Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.