Þetta helst

Alræmdasta óleysta morðmál Noregs

Birgitte Tengs var sautján ára gömul þegar hún fannst látin í kjarrgróðri við vegkant, skammt frá heimili sínu á Karmøy í sunnanverðum Noregi, í maí 1995. Hún hafði verið myrt. Í hönd fór ein umfangsmesta lögreglurannsókn norskrar sögu. Frændi Birgitte var dæmdur fyrir morðið en síðar sýknaður, meðal annars þökk vitnisburði Gísla Guðjónssonar réttarsálfræðings. Morðið á Birgitte telst því óleyst í meira en aldarfjórðung og hefur orðið eitt af alræmdustu glæpamálum norskrar sögu, orðið innblástur heimildaþáttum, hlaðvörpum og sjónvarpsseríum. hefur dregið til tíðinda í málinu, en norsk yfirvöld tilkynntu nýverið búið væri ákæra mann fyrir morðið. er einnig sakaður um annað morð á ungri konu. Þetta helst fjallar um morðið á Birgitte Tengs, rannsókn málsins og nýjustu vendingar.

Frumflutt

21. okt. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,