Þetta helst

Mengandi líkbrennsla í Fossvoginum

Bálstofan í Fossvogi er elsta bálstofa á Norðurlöndum. Þegar lík eru brennd í bálstofunni kemur frá henni reykur sem stundum leggst yfir náliggjandi leik- og grunnskóla. Í skólunum eru meðal annars börn með viðkvæm lungu sem ekki geta leikið sér úti þegar er logn og reykurinn er mikill. Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma, hefur reynt vinda ofan af vandamálinu. Þóra Tómasdóttir ræddi við hann, og Arnar Þór Gunnarsson starfsmann bálstofunnar. Einnig er rætt við Margréti Gígju Þórðardóttur leikskólastjóra Sólborgar og Arnheiði Helgadóttur skólastjóra Klettaskóla.

Frumflutt

6. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,