Þetta helst

Saga Constantins og dómsmálið gegn starfsmannaleigunni Seiglu

Þegar Rúmeninn Constantin Barbieru Manolache hætti vinna hjá starfsmannaleigunni Seiglu í mars í fyrra fékk hann ekki greidd laun fyrir síðasta mánuðinn. Constantin hafði fengið fimm menn frá bænum sem hann kemur frá í Rúmeníu hingað til lands í vinnu. Þeir voru í sömu stöðu og Constantin og áttu inni laun hjá Seiglu sem þeir fengu ekki greidd. Constantin fann til ábyrgðar gagnvart þeim vegna þess hann hafði fengið þá hingað til lands.

Constantin segir frá reynslu sinni af Seiglu í þættinum í dag. Hann stendur í dómsmáli gegn fyrirtækinu og reynir vangreidd laun frá því. Mál hans er fordæmisgefandi fyrir tugi annarra starfsmanna Seiglu segir lögmaður hans, Leifur Gunnarsson.

Lögmaður Seiglu, Skúli Sveinsson, segir við Þetta helst dómsmálið snúist um það álitamál hvort starfsmaðurinn hafi verið ráðinn í 70 prósent eða 100 prósent starf. Hann segir Constantin hafi fyrir mistök verið ráðinn í 100 prósent starf samkvæmt ráðningarsamningi en ætlunin hafi verið hann fengi 70 prósent starf.

Málefni starfsmannaleiga hafa verið mikið til umræðu í kjölfarið á umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks í lok september. Starfsmannaleigan Seigla hefur ratað inn í þá umræðu vegna þessa fjölmörg kjarabrotamál sem tengjast fyrirtækinu hafa ratað inn á borð til aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands, meðal annars Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði. Eins og er þá er Seigla eina starfsmannaleigan sem starfsmenn verkalýðshreyfingarinnar hafa rætt um opinberlega með nafni eftir Kveiksþáttinn.

Frumflutt

8. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,