Þetta helst

Sjarmerandi svikahrappar

Svikahrappar og loddarar leynast víða. Það mætti minnsta kosti ætla miðað við allt afþreyingarefnið sem er í boði um þá: bíómyndir, hlaðvarpsseríur, Netflix-þáttaraðir, heimildamyndir og bækur - framboðið virðist endalaust. Vinsældir þessa fólks hafa sjaldan eða aldrei verið meiri en einmitt þessi misserin, fólk virðist njóta þess fylgjast með þeim sem svíkja, ljúga og blekkja, villa á sér heimildir, nýta sér góðmennsku eða veika stöðu, eða bara mennsku annarra til sínu framgengt, eitthvað í staðinn - oftar en ekki peninga - og á það til lifa æði hátt fyrir annarra manna fé. Þetta sýna vinsældir sjónvarpsþátta á borð við Bad Vegan, Tinder Swindler, Inventing Anna og The Dropout, hlaðvörp eins og Doctor Death, Catfish, The Shrink Next Door og Dirty John - sem reyndar er líka orðið leikinni þáttaröð á einhverri streymisveitunni - og svona mætti lengi telja.

En hvað er það við þessa tegund glæpa og glæpamanna sem heillar? Selur? Er það tilfellið loddarar leynist á hverju horni, eða höfum við sérstaklega gaman af sögum þeirra? Í apríl síðastliðnum spurði Katrín Ásmundsdóttir Margréti Valdimarsdóttur, doktor í afbrotafræði og dósent í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri, út í loddarana og svikahrappana sem virðast vera á hverju strái.

Frumflutt

14. júlí 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,