Þetta helst

Íshellar á Breiðamerkurjökli

Íshellaferðir á Breiðamerkurjökli, og raunar víðar, njóta mikilla vinsælda. Myndbönd innan úr fagurbláum íshellum hafa farið í dreifingu á samfélagsmiðlum og eftirspurn eftir ferðunum er mikil. Samkvæmt talningu Vatnajökulsþjóðgarðs hafa 195 þúsund manns farið í íshellaferð í vetur.

Ekki er hægt fara í íshella árið um kring, og ekki er alltaf hægt segja til um hvenær þeir eru tilbúnir og hvenær þarf loka þeim. Reyndir jöklaleiðsögumenn sem Þetta helst hefur rætt við segja ekki ráðlegt lofa ferðum í íshella, nema mögulega á tímabilinu frá desember og fram í mars.

er þó svo komið sum fyrirtæki, einkum stærri fyrirtæki í þessum bransa, auglýsa og selja ferðir á Breiðamerkurjökli langt fram í tímann og teygja tímabilið yfir í frá október og fram í júní. Séu náttúrulegir íshellar ekki klárir á þessum tíma þá farið í framkvæmdir til stækka hellana, búa til aðgengi eða jafnvel búa til hella, en fyrir því eru engin leyfi innan Vatnajökulsþjóðgarðs.

Þetta vekur upp spurningar um hversu mikið inngrip er eðlilegt? bræða jökul og höggva í hann í nafni aðgengis og þess lengja íshellatímabilið?

Íris Ragnarsdóttir Pedersen er til viðtals í þættinum. Hún situr í stjórn Félags fjallaleiðsögumanna á Íslandi, Association of Icelandic Mountain Guides, skammstafað AIMG. Hún er sjálf menntuð í jöklaleiðsögn og býr á Svínafelli í Öræfum. Hún telur of langt hafi verið gengið til halda íshellunum opnum lengur og telur þjóðgarðinn verða grípa inní. Segir hún margir jöklaleiðsögumenn séu hugsi yfir þróuninni í íshellaferðum á Breiðamerkurjökli.

Til þess leyfi til selja íshellaferðir eða jöklaferðir innan þjóðgarðsins þarf sérstakt leyfi. Fyrirtæki þurfa vera með ákveðnar tryggingar, njóta samþykkis Ferðamálastofu, hafa sett sér umhverfisstefnu og vera með öryggisáætlun. Alls eru 29 fyrirtæki með leyfi til bjóða íshellaferðir innan Vatnajökulsþjóðgarðs, þar af 25 sem eru virk.

Steinunn Hödd Harðardóttir er þjóðgarðsvörður á austurhluta suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs og rætt er við hana í þættinum. Á Breiðamerkursandi er atvinnutengd starfsemi umfangsmeiri en víðast hvar annars staðar innan þjóðgarðsins. Hún segist telja íshellatímabilið á Breiðamerkurjökli sem er klárast hafi gengið nokkuð vel. Hún segir þjóðgarðurinn hafi fengið ábendingar um skipuleggjendur ferða hafi gengið lengra en áður í framkvæmdum á jöklinum en engar umsóknir hafa fengið um leyfi til framkvæmda.

Ólíkt virðist komið fyrir svæðum á austanverðum og vestanverðum Breiðamerkurjökli. Austan megin hefur sögn ekki verið gengið meira á náttúruna en tíðkast hefur á fyrri árum, en það eru aðallega smærri fyrirtæki störfum, mikið til rekin af heimamönnum. Stærstu fyrirtækin starfa vestan megin og þau eru með fjölmennari ferðir, sum fara með allt 700 manns á dag í íshellaferð, og það er á því svæði sem jöklaleiðsögumenn telja of langt hafi verið gengið.

Umsjón með þættinum hefur Eyrún Magnúsdóttir

Frumflutt

26. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,