Þetta helst

Verðhrun í Counter Strike

Margir Counter-Strike-spilarar urðu fyrir fjárhagslegu tjóni þegar framleiðendur tölvuleikjarins gerðu breytingar á úthlutun stafrænna muna í leiknum. Þessir stafrænu munir ganga kaupum og sölum utan leiksins fyrir himin háar fjárhæðir. Sem dæmi getur hnífur sem notaður er í leiknum kostað um 120 milljónir íslenskra króna.

Eftir því sem við komumst næst stundar stór hluti íslenskra spilara viðskipti með hina stafrænu muni leiksins. Þó ömulegt áætla hve umfangsmikil þau viðskipti eru. En við vitum til þess nokkrir þeirra hafi stundað milljóna viðskipti.

Við ætlum ræða um þetta hagkerfi leiksins við einn þekktasta Counter Strike spilara landsins, Þóri VIðarsson, sem kallar sig Turbo Drake í leiknum. Svo heyrum við í manni sem hefur verið stórtækur í viðskiptum í leiknum og tapaði umtalsverðum fjárhæðum við verðfallið fyrir viku. Hann lýsir því spilarar leiksins upplifi sig svikna af framleiðandanum eftir þessa nýju uppfærslu. Viðskiptin eiga sér líka myrkari hliðar og flæða inn á veðmálasíður þar sem spilarar tapa oft háum fjárhæðum.

Guðmundur Atli Hlynsson fréttamaður á Rúv útskýrir hvernig leikurinn gengur fyrir sig.

Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Frumflutt

31. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,