Wolt-væðingin á Íslandi
Sendlar sem keyra út matarsendingar fyrir Wolt hafa í einhverjum tilfellum fengið greitt fyrir vinnu sína í gegnum einkahlutafélög. Maðurinn sem átti einkahlutafélagið sem gögnin…
Ljóst er að engar kosningar verða til sveitarstjórnar í Snæfellsbæ, Vopnafjarðarhreppi, Kjósarhreppi og Tjörneshreppi í næstu viku því yfirkjörstjórnum barst aðeins einn framboðslisti í þessum sveitarfélögum. Rætt er við Evu Marín Hlynsdóttur, prófessor og sérfræðing í sveitarstjórnarmálum, Auði Kjartansdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Snæfellsbæ, Írisi Eddu Jónsdóttur, oddvita Sterkrar stoðar á Vopnafirði, Jóhönnu Hreinsdóttur, oddvita Íbúa í Kjós og Aðalstein J. Halldórsson, oddvita Tjörneslistans.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.