Þetta helst

Skotárásir III: Hvatinn (e)

Þriðji þáttur af fjórum í seríu Katrínar Ásmundsdóttur um skotárásir í Bandaríkjunum. Í þættinum er rætt við Margréti Valdimarsdóttur, doktor í afbrotafræði og dósent í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri, og spyrjum hana út í hvatanna og tilefnin baki skotárásum. Sér í lagi fjöldaskotárásum, eins og þeirri sem átti sér stað í grunnskóla í Uvalde í Texas undir lok síðasta mánaðar. Þar sem maður myrti tuttugu og einn, þar af nítján börn undir tíu ára aldri. Skyttan sjálf var átján ára. Raunar einkennir lágur aldur lang lang flesta skotárásarmenn í grunnskólum. Það og kyn þeirra - en flestir þeirra eru piltar undir átján ára aldri. En hvernig gerist þetta? Hvernig gerist það einstaklingur ákveður beita vopni gegn annarri manneskju í samfélagi eins og Bandaríkjunum, sem á svo margan hátt er líkt okkar? Hvað þá gegn fjölda fólks? Gegn börnum? Hverjir fremja skotárásir og hvað knýr þá áfram? Þátturinn var fyrst á dagskrá 9. júní 2022.

Frumflutt

27. okt. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,