Þetta helst

Kynferðisbrot og kynferðisleg áreitni á Íslandi

Tvær skýrslur komu út í liðinni viku. Önnur kemur út árlega og hefur gert undanfarna áratugi, en hin er byggð á stórri rannsókn. Báðar snúa þær kynferðislegri áreitni eða kynferðisofbeldi. árlega, skýrsla Stígamóta, sýnir ákveðið umfang kynferðisbrota á landinu, þau brot sem fólk verður fyrir og leitar sér aðstoðar vegna. Biðlistarnir á Stígamótum eru lengjast, fólk getur þurft bíða í 10 til 12 vikur eftir viðtölum. Stafrænt kynferðisofbeldi er aukast og 16 prósent gerenda eru undir átján ára aldri. Hin skýrslan varpaði ljósi á algengi kynferðislega áreitni á vinnustöðum landsins. Um þriðjungur kvenna hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi á vinnustað einhvern tímann á lífsleiðinni. Þetta helst gluggaði í skýrslurnar.

Frumflutt

2. sept. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,