Þetta helst

Gagnaverin sem fóðra símafíknina

Við erum öll sítengd. Það er okkar nýi veruleiki, eða hann er jafnvel ekkert svo nýr lengur. Fræðimenn segja snjallgræjurnar vera orðnar framlengingu sjálfsins - símann hina nýju hægri hönd líkamans. Þau eru augnablikin sem við erum ótengd, erum ekki í símanum, spjaldtölvunni, fartölvunni, vinnutölvunni, með snjallúrið á okkur, fyrir framan snjallsjónvarpið eða nettengd í gegnum spinninghjólið. En hvernig er það hægt? Hvernig getum við öll, eða flest, verið tengd öllum stundum, öll í einu?

Mörg okkar kannast við þurfa hafa snjallsímann alltaf innan seilingar. Jafnvel bara í hendi eða augsýn - svo engar tilkynningar eða skilaboð fari framhjá okkur, með öllu því áreiti - meðvituðu eða ómeðvituðu - sem því fylgir. Og kannski vildu margir eyða minni tíma í símanum - og tapa sér síður í samfélagsmiðlaskrollinu rétt fyrir háttinn. En af hverju ætli þetta svona, hvers vegna er svona erfitt leggja símann á hilluna?

Við endurflytjum viðtal Katrínar Ásmundsdóttur og Guðmundar Björns Þorbjörnssonar við Kristjönu Björk Barðdal, tæknisérfræðing og þáttastjórnanda UT hlaðvarpsins Ský, síðan í apríl síðastliðnum, þar sem þau ræddu um vinsældir Íslands fyrir gagnaver og af hverju við erum háð símunum okkar.

Frumflutt

15. júlí 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,