Þetta helst

Creditinfo einvaldur um lánshæfi fólks

Mikil reiði hefur blossað upp meðal fólks sem á einni nóttu fékk lækkað lánshæfismat í kladdanum hjá Creditinfo. Fjölmargir eru ósáttir við eldri vanskil, sem áður voru fyrnd, komi aftur inn í gagnagrunninn og lækki lánshæfismat þeirra. Afleiðingarnar eru meðal annars þær fólk missir lánaheimildir svo sem kredittkort rétt fyrir jólin. Þóra Tómasdóttir ræðir við Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar og Lovísu Ósk Þrastardóttur yfirlögfræðing hjá Umboðsmanni skuldara. Þær kalla eftir eftirliti með lánshæfismati Creditinfo.

Frumflutt

1. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,