Þetta helst

Umdeildir rostungar á ferð og flugi

Sjávarspendýr, stór og mikil, mörg hundruð kíló þyngd með stórar skögultennur, eru til umfjöllunar í Þetta helst þætti dagsins. Vera Illugadóttir fjallar um rostunga sem hafa valdið usla í samfélagi okkar mannanna upp á síðkastið. Allnokkrir hafa ratað í fréttirnar undanförnu, dýr sem komin voru langt frá heimkynnum sínum í Norður-Íshafi og vöktu bæði mikla athygli og þóttu valda talsverðum óskunda með uppátækjum sínum - og sögur þeirra enduðu sjaldnast vel. Við heyrum af rostungsurtunni frægu Freyju í Noregi, Stenu í Finnlandi og tveimur rostungum sem höfðu viðkomu á Íslandi með nokkurra áratuga millibili og hétu báðir Valli.

Frumflutt

16. ágúst 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,