Þetta helst

Áfengi í netverslunum. Hvað er löglegt og hvað ekki?

Netverslun með áfengi hefur færst í vöxt. Hún byggir á einni af meginstoðum EES-samningsins - frjálsum vöruflutningi milli landa innan evrópska efnahagssvæðisins. Í skjóli samningsins geta verslanir í löndum utan Íslands, en innan svæðisins, selt áfengi í netverslun þrátt fyrir einkaleyfi ríkisins á smásölu í gegnum ÁTVR. Vegna einkaleyfisins mega netverslanirnar ekki vera skráðar hér á landi.

Íslenskar verslanir eins og Hagkaup eða Heimkaup geta því aðeins selt áfengi með því stofna erlenda netverslun, en það er á aðeins gráu svæði hvort það telst erlend verslun ef lagerinn er í mekka íslenskrar verslunarmenningar - Skeifunni. Forsvarsmenn Hagkaups, Heimkaups, Costco, Sante, Nýju vínbúðarinnar og fleiri sem selja áfengi gegnum netið, telja engan vafa á salan lögleg, segja jafnvel bara tímaspursmál hvenær innlend netverslun verður heimil.

En ráðherrar eru ekki sammála um hvort athæfið er löglegt eða ólöglegt. Þeir eru heldur ekki sammála um hvaða breytingar þurfi gera á lögum. Endurskoðun löggjafar um áfengi hefur staðið til í nokkur ár, en lítið hefur gengið í koma slíkum breytingum í gegnum þingið.

Eyrún Magnúsdóttir fjallar um grátt svæði í netverslun með áfengi og ræðir við Dóru Sif Tynes lögmann og sérfræðing í Evrópurétti.

Frumflutt

28. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,